Inner Wheel á Íslandi, Umdæmi 136, boðar til haustfundar laugardaginn 28. október 2017 frá kl. 10 – 14 í safnaðarheimili Dómkirkjunnar að Lækjargötu 1, Reykjavík.
Boðið verður upp á morgunhressingu kl. 10 og síðan súpu í hádeginu. Verð er kr. 1500.
Dagskrá haustfundarins:
- Kynning á embættum forseta, ritara og gjaldkera í klúbbunum.
- Létt spjall um hvernig klúbbarnir verja fundum sínum á starfsárinu.
- Heimasíðan.
- Önnur mál.
- Að hádegisverði loknum heimsækjum við Dómkirkjuloftið.
Okkur finnst kominn tími til að hittast, til að mynda betri tengsl milli klúbba og jafnframt fara yfir hlutverk embættanna.
Allir eru velkomnir á haustfundinn.