Heimsóknir umdæmisstjóra á haustmánuðum 2024

Umdæmisstjóri Inner wheel á Íslandi mun heimsækja alla klúbba Inner Wheel á haustmánuðum 2024. María Heiðdal umdæmisstjóri heimsótti IW Selfoss þann 10. sept. og kynnti sig og sagði frá fyrirhuguðum umdæmisfundi 2. nóv. Með henni í för voru Vigdís Jónsdóttir umdæmisritari og Stefanía Borg Thorsteinsson, fráfarandi forseti IW Reykjavík. En þær höfðu ásamt Maríu farið í afar skemmtilega ferð með sjö félögum úr  IW Selfoss til Manchester og héldu þar uppá 100 ára afmæli IIW.

Næstu heimsóknir umdæmisstjórans eru til IW Keflavík þann 17. sept. kl. 18.00, þá miðvikudaginn 9. okt. IW Reykjavík kl. 11.30 og um kvöldið IW Hafnarfjörður kl. 18.30. Þann 13. nóvember heimsækir umdæmisstjórinn síðan  IW Kópavog.

Nína Guðbjörg Pálsdóttir, fráfarandi forseti IW Selfoss og María Heiðdal umdæmisstjóri.

Scroll to Top