Inner Wheel á Íslandi, Umdæmi 136, boðar til haustfundar laugardaginn 28. október 2017 frá kl. 10 – 14 í safnaðarheimili Dómkirkjunnar að Lækjargötu 1, Reykjavík.

Boðið verður upp á morgunhressingu kl. 10 og síðan súpu í hádeginu. Verð er kr. 1500.

Dagskrá haustfundarins:

  • Kynning á embættum forseta, ritara og gjaldkera í klúbbunum.
  • Létt spjall um hvernig klúbbarnir verja fundum sínum á starfsárinu.
  • Heimasíðan.
  • Önnur mál.  
  • Að hádegisverði loknum heimsækjum við Dómkirkjuloftið.

Okkur finnst kominn tími til að hittast, til að mynda betri tengsl milli klúbba og jafnframt fara yfir hlutverk embættanna.
Allir eru velkomnir á haustfundinn.

Scroll to Top